|
|
25.01.2008 10:20:57 / lindzia
Elsku vinir! ég er búin að opna nýja bloggsíðu og ætla að hætta með þessa. Endilega kíkið á nýju síðuna og breytið hjá ykkur slóðinni!  http://lidzki.blogspot.com/ Berglind
»
24.01.2008 12:05:16 / lindzia
Kominn aftur á skólabekk! Nú í masternum í ferðamálaræði. Verð að segja að so far líkar mér námið vel og ferðamálafræðin er áhugaverð þótt vissulega brjótist innan í mér átök milli kenninga þar og kenninga mannfræðinnar sem eru orðnar mér svo tamar. Er enn ekki alveg viss hvort ég haldi áfram í þessum fræðum eða fari aftur yfir í mannfræðina sem mér finnst óneitanlega lang skemmtilegust...þetta er bara tilraun til að fara í meira hagnýtara nám en þróunar-og mannfræðin kítla alveg jafn mikið. þetta er einnig hálfvegins eins og svik við sitt lið því í HÍ halda deildir sér saman og kítingur er á milli deilda og manni finnst maður vera að svíkja lit með því að skipta um fag. til að mynda var ég litin hornauga af kennurum félagsvísindadeildarinnar þegar ég spurðist fyrir um stofur í raunvísindadeildinni en ferðamálafræðin er innan þeirra. ég fékk einnig tilfinningu í fyrradag þegar ég sat fyrirlestur hjá félagsvísindadeild að ég þyrfti að afsaka mig fyrir að hafa skipt um námsbraut. En auðvitað á ég ekki að þurfa þess, ég er þarna eingöngu fyrir sjálfan mig og mína framtíð. í gangi heima hjá mér þessa dagana er gæludýrastyrjöld. Við erum með kisuna hennar Gunnu Dísar í pössun næstu 3 mánuði og kisan okkar ætlar ekki að láta eftir yfirráðasvæðið sitt án baráttu. þetta virðist vera samt hálf saklaus slagsmál, allavega eru þær ekki að meiða hvort aðra neitt alvarlega. Það eru bara bölvuð læti í þeim og þær spóla út um alla íbúð og yfir allt og alla án þess að taka tillit hvort það sé manneskja eða húsgagn sem þær eru að hlaupa yfir. þetta eru náttla dýr þannig að við þessu er ekki mikið að gera, Marek tekur á þeim ansi hart og lokar þær hiklaust inni í sitt hvort herberginu ef lætin eru mikil. þess á milli liggja þær saman og hafa það notalegt...skil ekki alveg þetta dýrseðli! En þetta hefur orsakað það að nýja leðursófasettið okkar hefur verið hulið rúmteppum, gluggasillurnar hafa verið tæmdar af öllum smáhlutum og þegar við förum út úr húsi þá er stofan lokuð. Gunna Dís og Kristján farin til Montreal í Kanada í -20 stiga sumarveðrið! komin smá bumba á Gunnu og hlakka ég mikið til að sjá hana. ég og Sandra erum á leið í heimsókn til þeirra um miðjan febrúar og teljum spenntar niður dagana. Annars er rólegt hjá mér á hótelinu þessa dagana, gefur mér tíma til að huga að málum sem ég hef ekki hugað að lengi, eins og til dæmis að skrá bloggfærslur! það er því rólegheitunum í janúar að þakka að þið fáið að heyra nokkur orð frá mér! Leikurinn að byrja milli Íslands og Spánar. Okkar menn verða að vinna hann! Áfram Ísland!!!
»
02.09.2007 19:07:52 / lindzia
Enn einu sinni er maður komin á klakann! nú er maður giftur, orðin FRÚ! Ekki lengur miss, heldu bara Mrs.! Eins og vanalega er éd mjög lélegur bloggari, fengi örugglga lúser verðlaun bloggara þetta árið en....vildi bara láta vita að ég er einnig á myspace, ekki það að ég sé þar mikið oftar...en kanski aðeins oftar. Slóðin er myspace.com/lindzia Nenni ekki að skrifa um brúðkaupið, þið voruð þarna flest! Hafið það gott, farið heim að elda luv Linda
»
02.07.2007 09:39:59 / lindzia
2 júlí ladies and gentlemen! Förum út eftir 14 daga!! Kræst hvað
tíminn flýgur! Finnst ég varla búin að leiða hugann að
þessu en að þessu er að koma! I´m getting married!!!
Skunduðum með tengdó upp á esjuna í gær. Hélt að ég myndi ganga
fram af þeim gamla sem gafst upp í efsta þrepinu og þar skyldum við
hann eftir meðan við þrjú, Marek, ég og Renja löbbuðum á
toppinn...Marek greyið með sitt litla hjarta var þó alveg við að
gefast upp af lofthræðslu en með því að horfa upp á mig og móður
sína halda ótrauðar áfram þá gat hann ekki verið minni maður og
harkaði af sér. Sótbölvaði mér síðan fyrir að hafa dregið hann í
þetta þegar á toppnum var loks náð og hann áttaði sig á
því að hann þyrfti að koma sér niður aftur!
Muhahahahahhaha....
Annars lítið að frétta nýtt nema að kjólamátun fer að hefjast og
leitin að slörinu og skónum er hafin! 
knúsar
Berglind
»
14.06.2007 22:20:13 / lindzia
Jæja, nokkrir dagar liðnir síðan ég skrifaði
síðast!hehehe....Takk fyrir kommentin að minna mig á það! 
Anyway, sólskín og tóm gleði á klakanum. Marek og ég sveitt í
kjallaranum hjá veislunni alla daga að elda, smurbrauðast og þjóna,
jíhaa...svakafjör! Tilvonandi tengdaforeldrar mínir, Foreldrar
Mareks; Renja og Anjey (nickname okei!) komu til Íslands fyrir
2 vikum síðan og verða á Íslandi fram að 18 júlí. þau búa heima hjá
yfirmanni okkar Mareks og eru að vinna hérna, Anjey við að laga hús
yfirmanns okkar og Renja vinnur með okkur í veislunni.
Stórskemmtilegt fólk og gaman að fá tækifæri til að kynnast aðeins
betur tengdó....Ekki það að ég geti nokkuð meira tjáð mig á
pólskunni eða þau á enskunni...En með túlk erum við á góðu róli með
að kynnast betur! 
Aðeins mánuður er núna í það að ég og minn verðandi eiginmaður
förum af landi brott til fyrirheitna landsins þar sem brúðkaup
aldarinnar verður haldið! EN FYRST ÞETTA:
ÚTSKRIFTIN MÍN!!! Jibbý! BA loksins búið og ég stóð mig alveg
þrælvel þótt ég segi sjálf frá og leyfi mér bara að monta mig
aðeins, enda mitt blogg og ég get sagt það sem mér sýnist! En
með dyggum stuðningshóp yfirlesara klöngraðist ég sveitt í gegnum
45 blaðsíðna ritgerðina og komst lifandi en næpuhvít og
rykfallinn frá síðustu þremur mánuðum af bókaormalifnaði! Næst
á dagskránni: feitt djamm á laugardaginn 16 júní þar sem haldið
verður upp á útskriftin með pompi og prakt og ætlar Gunna Dís
svakaskvís að lána mér höllina sína til að halda mína
fiesta....takk fyrir það elskan! Síðan er bara brillupið....Engin
kíló farin samt, bara 2 komin tilbaka og bauð ég þeim velkomin
heim!
Þið yndin mín sem ætlið að heiðra okkur hellisbúanna með komu
ykkar út látið mig endilega vita ef ég get aðstoðað með flug,
hótelið eða eitthvað...við erum búin að láta taka frá eitthvað af
hótelherbergjum en endilega látið mig fá komu-og dvalar tímann
ykkar svo ég hafi allt á hreinu þegar við förum út og hittum
hótelstjórann!
knúsar
Bizinn kveður og lofar engu með framhaldið
»
20.11.2006 10:45:24 / lindzia
Trallalalala....er búin að sjóða saman algjörri steypu sem á að
heita ritgerð um Emile Durkheim og G.H. Mead, bíð engum til að lesa
hana og dauðvorkenni kennaranum....en gæti hreinlega ekki staðið
meira á sama, þessi kúrs er ekkert nema dauðinn, er skyldukúrs í
dag en á að taka hann út af kennsluskrá eftir þetta ár! hvað er
þett fáránlegt ha! Meðan ég næ kúrsinum þá fínt, búið og
bless...
Annars er loksins komin snjór í höfuðborgina, við hellisbúarnir
vöknuðum í gærmorgun snjóuð inni! þurftum að klæða okkur í
eskimóbúninginn okkar áður en við réðumst í að komast út úr
íbúðinni okkar, ég arkaði í skólann sem venjulega tekur mig 3
mínótur en í gær tók það mig 15 mín. enda um meters háa snjóhóla
sem ég þurfti að komast yfir. Marek fór í að bjarga dósinni, en
bíldruslann okkar var horfinn í snjófjallið. 2 tímum seinna var
hann búinn að hreinsa hann allann, skafa fyrir framan hann og aftan
og moka fyrir útidyrunum okkar svo að ég kæmist aftur inn til mín!
hann er svo duglegur þessi elska! 
Horfðum í gærkveldi á ferðina til Guantanamo Bay. Hryllingurinn
og dýrslega meðferðin á föngunum kom mér ekki mikið á óvart, maður
var búin að heyra og lesa um þetta áður, frábært bara að sjá að
þetta sé loksins komið á hvíta tjaldið og að fangabúðunum þarna sé
búið að loka...ekki það að Bandaríski stjórnin hefur í staðinn
opnað bara aðra búðir annars staðar, enda eiga þeir heiminn og mega
gera það sem þeir vilja er það ekki?
Byrjuð í ræktinni að nýju, helvíti ánægð með mig. loksins komin
í Jógað aftur sem var svo sannarlega sárt saknað! Fór í einhven
body shape tíma í síðustu viku sem var afskaplega mikill slow
motion en ég var með hassberur í viku eftir hann. Rosalega er maður
í góðu formi! þýðir samt ekkert nema að drífa sig aftur af stað og
berja sig áfram, það er wedding eftir 9 mánuði! 
»
07.11.2006 11:58:57 / lindzia
Tallin ferðin löngu liðin. Algjör fyllerísferð, var marga daga
að jafna mig. Var rosa stuð, hótelið glæsilegt og kojufyllerí á
herbergjunum á hverju kvöldi, djamm fram undir
morgni...félagsskapurinn var svo mikil snilld að við hefðum getað
verið í hundakofa og samt skemmt okkur snilldar vel! 
Marek tókst að brjóta á sér litla puttann í einu fyllerísruglinu
og ég lét henda mér út á ´hárinu á einum staðnum...ræðum ekki meira
um það! ágætt samt að fyrst að hann þurfti endilega að brjóta á
sér puttann, að hann gerði það þarna...við borguðum aðeins 5000
ísl.kr. fyrir gifsið og röntgenið...plús ferð með sjúkrabílnum!
 
En allavega í heild mjög góð ferð, mæli alveg með Tallin,
fallegur miðaldar miðbær en maturinn var ekkert sérstakur og fólkið
frekar tensað...kannski frekar að fara til Prag ef þið viljið fara
til austur Evrópu....
Afmælið mitt var fyrir tveimur helgum. ég hélt dúndur partý
heima, mættu milli 10-15 manns í míní íbúðina mína og skemmtum við
okkur konunglega. Afmælisdýrið var náttla búin að djúsa allt
kvöldið því partýið byrjaði 21 en eins og íslendingum sæmir komu
gestir ekki fyrr en upp úr 23. Farið var í bæinn um 02 og dýrið var
komið heim um 04, alveg búið á því! Hitt dýrið, maðurinn í
gifsinu, var sóber og gat því keyrt afmælisdýrið fram og tilbaka,
þvílíkur kostur að hafa einkabílsstjóra! 
Jæja, ég bíð spennt eftir brúðarkjólnum sem ég er buin að panta
á ebay...hehehe verður gaman að fá hann....sendur frá Kína, 7-9-13
að ég lendi ekki í íslenska tollnum!
Jæja Marx tíminn að verða búinn, hætt í bili. Knúsar úr
hellinum
»
14.10.2006 16:39:47 / lindzia
Heil og sæl! Tallin á morgun, jey!!! Erum að fara 40 manns úr
vinnunni, fljúgum beint til Eistlands og verðum í 4 daga á 5
stjörnu hóteli! ekki slæmt! 
Takk elskurnar fyrir að kommenta á síðuna mína, ég dauðskammast
mín hversu aðrir eru mun duglegri en ég við að blogga....
Anyhow, ég var engan vegin að átta mig á því að við værum að
fara þessa helgi út, er búin að vera allt of upptekin í skólanum,
að taka upp viðtöl, lenda í fokki með afritunina og þurfa að
endurtaka viðtölin...tóm beðja skal ég segja ykkur!
En svo var ég minnt á það á fim að við væru að fara og ég ekki
búin að kaupa gjaldeyri eða neitt! shit! stökk á fös út í exchange
office en þá var allur gjaldeyrinn uppseldur...við erum sem sagt
því að fara út með 100 Evrur og vísakortið og það verður bara
straujað kortið! Og hananú!
ég ætla sko að leyfa mér að versla, föt á mig, jólagjafir,
afmælisgjafir, framtíðargjafir og bara alls skonar gjafir fyrir
mig! hihihihihiihi...ég á það sko skilið! 
VOna að þið öll séu ljómandi hress og í góðum fíling. Fanný er
hjá Sigrúnu í Noregi og eru þær gellurnar örugglega á einhverju
fyllerí í Osló, hefði ekkert á móti því að vera þar með þeim!
Ahhh og ég átti alltaf eftir að óska Sölva og Önnu Maríu vinkonu
innilega innilega INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ GIFTINGUNA!!!! þau
spússuðu sig saman 4 sept í algjörri kyrrþey, voru bara þau tvö og
borgaradómarinn, voða rómó og kósí! Ekki alveg eins og mitt er
planað, mér skilst að við verðum nálægt 100, þriggja daga
partý og það er þegar búið að panta vodkann! Rock og
Ról!
Jæja, farin að afrita...
»
03.10.2006 12:00:11 / lindzia
ég er engan vegin að geta dottið í lærdómsstuðið, nenni ekki að
læra, lesa né neitt sem tengist skólanum. Það er bara eins og yfir
mér sé einhver leiðindarára sem gerir það að verkum að ég kem engu
í verk. Uff...samt miklu meira en nóg að gera, mitt fyrsta viðtal á
fös. í eigindlegum rannsóknum og síðan þáttökuathugun í næstu viku
sem ég hef heldur aldrei áður gert. ég þarf virkilega á öllum mínum
krafti en er ekki að geta fundið hann, kanski vantar mig vítamín.
Hvaða vítamín er það aftur sem eru góð fyrir heilastarfsemina?
Kannski syndir heilinn minn bara enn í bjór frá því síðustu
helgi. Við hellisbúarnir skelltum okkur á Dilönu og Magna á Brodway
og voru þau alveg MAGN..ificient! Dilana úber kúl með bleika
snúða í hárinu og Magni með bleikan hanakamb. Tóku þekkt lög og
tókst að trilla lýðinn. Virkilega skemmtilegt sjóv! Við urðum
náttla vel drukkinn og vorum á djamminu til 7 um morguninn. Sváfum
svo til 6 daginn eftir og eftir það lá kokkurinn og ældi eins og
múkki þangað til farið var aftur í rúmið um miðnætti. Greyið...
Sit enn einu sinni í boring Marx og Weber tíma, allt of langur
tími, 3 klukkutímar af þungum þurrum kenningum...það á að drepa
mann!
»
26.09.2006 11:27:01 / lindzia
Var að bæta inn myndum í albúmið, smellið á linkinn "myndir" og
ýtið svo á refresh og þá eiga nýju albúmin að koma upp. ég set
síðan inn meira eftir að ég hef heyrt að fólk getur skoðað þessar
myndir. Have fun!
»
26.09.2006 09:27:30 / lindzia
Hvað maður stendur sig vel, maður bloggar bara á hverjum degi,
skil ekkert hvernig þið nennið að lesa þetta allt saman! 
En ég kann enn ekkert að setja inn myndir á síðuna mína, sem er
bara hundfúlt því ég á nóg af myndum, fullt af nýju íbúðinni og
svona....algjörlega ótæknisinnuð!
Anyhow, erum komin með síma á Eggertsgötuna 5904252 þannig að
nú er engin afsökun að ekki sé hægt að ná í mann!
Sit núna í boring kennslustund um Karl Marx og Max
Weber...Zzzzzzzz....löngu dottin úr sambandi við hvað kennarinn er
að tala um, eitthvað um firringuna heyrist mér.
Annars er allt hið fínasta að frétta, kokkurinn minn stendur sig
vel í íslenskukennslunni, kann núna að segja "ég heiti Marek" og
"ég er frá Póllandi" hahahahahaha..ljómandi skemmtilegt! Mín
pólska gengur hægar, ég kann bara að segja "Witam" og "Dzen Dobry"
sem þýðir ´"sæll" og "góðan daginn" held að ég hafi samt
skrifað þetta eitthvað vitlaust.
Anyhow, bíldósin mín er alveg að deyja, er í síðustu
andarslitunum greyiðþ hún hristist svo mikið þegar við keyrum að ég
bíð eftir að hjólin hristist af á einhverri brautinni og við endum
á grindinni í vegakantinum. Ef það gerist ekki þá er næstum öruggt
að maður fer að ganga í gegnum gólfið þar sem hann er svo ryðgaður
og ekki á það eftir að skána í saltáburðinum í vetur. En það er
kannski bara allt í lagi, við verðum þá bara eins og Flintstone og
spörum bensínið!
En eins og Hemmi segir alltaf: verið hress, ekkert stress, bless
bless! 
»
25.08.2006 17:49:19 / lindzia
kominn heim á klakann. Reykjavík alltaf eins nema umferðin,
alltaf er búið að breyta götunum þegar ég kem þannig að ég villist
alltaf einu sinni.
Nóg að gerast hjá vinahópnum, Harpa Halld. búin að eignast
yndislegan lítinn dreng sem er kallaður kútur. Bjarney og Óskar eru
búin að gifta sig og skíra snúlluna sína, Gunna er á landinu og
ekki með Braga (í augnablikinu! ) og síðast en ekki síst....
Hellisbúarnir eru búin að ákveða að gifta sig!!!!! HíííHaaa!!

Já við ætlum að láta pússa okkur saman, je hvað maður er orðin
fullorðin...ég var bara 17 í gær! En við ætlum fyrst í hnapphelduna
í Póllandi fyrir MAreks familí og síðan heima á AKureyri fyrir mína
familí og vini. DAgsettning: óákveðin en stefnt að ágúst í Póllandi
næsta sumar, sumarið þar á eftir á íslandi. Tími: 16:00.
hehehe...
Þetta eru aðalfréttirnar í dag. Annars áttum við þvílíka túndur
roadtrip um austur Evrópu í júlí. Fórum á 15 dögum til 8 landa;
Póllands, Tékklands, Austurríki, Ítalíu, Slóveníu, Króatíu,
Ungverjalands og Slóvakíu. Sjúklegt ferðalag og drullugaman hjá
okkur. Urðum náttla pirruð á hvort öðru á köflum en það var bara
tekinn bjórinn á því og hlegið eftir á af ruglinu í okkur!
En núna erum við sem sagt komin heim til íslands. Sakna Koben,
Kbar, striksins, bjórsins, Stínu, veðursins, ferðamátann,
hjólastíganna.....
Samt næs að vera komin heim og hitta familíuna og vini. ERum bæði
byrjuð að vinna í veislunni, Marek byrjar í málaskóla 19 sept og
Háskólinn hjá mér 5 sept.
Reyni að skrifa fyrr næst! hihihi...
»
31.05.2006 11:52:22 / lindzia
Loksins búin að skila þessum blessuðu ritgerðum! Bleee hvað ég
var að verða gráhærð að sitja inni alla daga við að skriftir, undir
það síðasta var viskubrunnurinn uppurinn gjörsamlega og er ég því
ekkert alltof bjartsýn að lokaorð seinni ritgerðarinnar hafi yfir
höfuð verið skiljanleg...anyway, búin að skila, fock it! Næst eru
það 2 munnleg próf þann 20 og 21 júní, þetta ætlar aldrei að vera
búið!!
Örvar bróðir að úrskrifast úr Háskólanum á Hvanneyri á morgun,
eftir aðeins 2 og hálft ár! glæsilegt hjá drengnum, glimrandi
háskólanemar í fjölskyldunni! 
Marek farinn að vinna nánast alla daga, þar sem staffið í
vinnunni hans hefur eitt af öðru látið sig hverfa, enda borgað
lúsalaun í þessum kofa...aðeins 1 og hálfur mánuður eftir og Marek
farinn að telja niður dagana. Við erum búin að ákveða að skella
okkur hringferð um austur Evrópu þegar við yfirgefum Danmerku í
kringum 15 júlí. Pikka upp bílinn hans Mareks í Póllandi og keyra
alveg niður að miðjarðahafi og upp aftur...aaaa hvað það hljómar
skemmtilega. Endilega ef þið hafir komment á hvað við ættum að sjá,
passa okkur á eða ómissandi að gera, meðan á þessu ferðalagi
stendur, sendið mér línu...allar ábendingar vel þegnar!
Allir farnir að vinna í kringum mig og ég er nánast ein í
hellinum alla daga, voða tómlegt! Og þar sem ég þarf að vera inni
að læra þá er þetta hreinlega hundleiðinlegt...langar út, djamma,
sleikja sólina, slappa af, drekka kokteila...Aaaaaa....
En þýðir ekkert annað en að herða sig og rympa þessu af, er ekki
survivor fyrir neitt! 
Hellisbúinn kveður
»
16.05.2006 17:43:06 / lindzia
Jæja, loksins fór að rigna! jey! sjaldan verið eins glöð að sjá
dropana á rúðunni í morgun, gerir allan lestur mun auðveldari þegar
ég þarf ekki að horfa á hálfnakta kroppa flatmagandi í sólinni,
drekkandi bjór og grillandi! þetta er miklu betra, allir niðurlútir
og á hlaupum undan rigningunni! ég tek því hins vegar bara rólega
og labba í skólann!
Annars held ég að ég sé að verða ansi antisocial þessa dagana,
hitti nánast engan nema hjásvæfuna mína og veit algjörlega ekkert
hvað er að gerast í kringum mig eða í heiminum yfir höfðuð!
sérstaklega er ég útúr danska kúltúrnum, gott dæmi; fyrir nokkrum
dögum síðan skellti ég mér á hjólið og hjólaði alla leið niður á
Amager (tekur ca.30 min) með fullan bakpokann af bókum til að skila
á bókasafnið, bara til að koma að því lokuðu því það var national
frídagur!!! Algjörlega fór það fram hjá mér að allar búðirnar sem
ég hjólaði framhjá voru lokaðar, en ég sá það á leiðinni heim!
Það var víst "preyer day" en er það ekki uppstigningadagur? það
held ég allavega...anyhow, ég er útúr þessa dagana og held áfram að
vera það því bara í gær komst ég að því að munnlegu prófin mín
verða ekki fyrr en í lok júní!! það þýðir að ég geri ekki mikið í
júní nema að lesa....bleeee...sakna HÍ og próflokin í maí!!
jæja hungrið kallar...
»
12.05.2006 15:14:40 / lindzia
Allt gert til að gera lærdóminn erfiðari! Sólin hættir ekki að
skína, 25 stiga hiti og heiðskýrt alla daga! Byrjar pottþétt að
rigna daginn sem ég er búin í prófum!
Annars sorry fyrir að blogga lítið þessa dagana, á erfitt með að
hugsa á íslensku þessa stundina, thinking only in english!
vona að ykkur öllum gangi vel og líði vel
later
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 25 janúar
|